Afi pafi og dýrið
Það eru 72 ár á milli þeirra en þau eru bestu vinir og skemmta sér yfir sömu hlutunum. Þau hafa verið félagar í níu ár. Frá þvi það var hægt að skorða hana þannig í vagninum að hún gat setið þá fór hann með hana út í bílskúr þar sem hann var að vinna. Svo spjallaði hann við hana um allt milli himins og jarðar á meðan hann gerði að bátnum eða hnýtti upp krókanna fyrir handrúllunna. Auðvita var svo tekið kaffi klukkan hálf fjégur eins og hann segir. Eftir hvern sopa sagði hann við dýrið: það hressir bragakaffið... enda var þetta fyrsta setninginn sem kom uppúr henni. Fyrst kom “allt búið”.. enda ekki við öðru að búast frá bumburassinum og svo þetta! Mjög eðlilegt fyrir þessa 1 árs dömu. Þegar maður er lítill þá skiptir máli fyrir mann að maður fái mat sem maður getur melt. Þetta par var ekki sammála þvi. Þegar dýrið var farið að geta ýtt sér áfram í göngugrindinni var hún eins og píla fram í eldhús ef hún heyrði afa kalla. Hann réttara sagt tísti á hana, svona eins og fuglamamma. Þá var hann að fá sér að borða, tugði allt og gerði klárt! Litla dýrið skaust strax við hlið hans og opnaði munninn eins og fuglsungi... og fékk sinn skammt!! Ég var fyrst að skamma hann fyrir þessa villimennsku og hvað þetta væri ógeðslegt en ... Hann vildi meina að þetta hafi greinilega ekki gert mér neitt íllt þegar ég var lítil því væri þetta í lagi! Hvað gat maður sagt þá? Fyrst fóru þau alltaf í göngutúr saman á meðan hún var í vagninum en svo þegar aldurinn færðist yfir þann gamla hófust rúntarnir á bryggjunna. Þá voru keyptar mandarínur og epli og farið og skoðað goggurnar, sem breyttust svo í sílamáfa, hettumáfa, ritur, fíla og hrafna og boggurnar sem breyttust í Ármann! Allir bátar urðu afa bátar: Ármann. Hún hefur verið mikið hjá þeim og það heyrist greinilega á málfari hennar. Hún slær út svefnbekkinn og stillir á vini sína í símanum!
Afi fór í aðgerð á auganu í morgun. Þegar við fórum seinni partin til þeirra sat dýrið inni hjá honum og strauk á honum höndina á meðan hún sagði honum helstu fréttir dagsins og hvað væri svona það helsta sem væri að gerast í bratz heiminum líkaJ Eftir það fór hún fram og smurði handa honum brauð og náði í kaffi og færði honum. Passaði hann eins og hann hefur alltaf passað hana. Mér þykir svo vænt um að hún eigi þetta samband við langafa sinn.

3 Comments:
Þessi lesning minnir mann á gamla tíma... af kenndi mér að lesa og skrifa, hjóla og synda, tefla og spila kasínu :) ... maður gleymir þessu sko ekki þannig að litla dýrið er svaka heppin :)
12:00 PM
undirskrift: Inga Jóns :)
12:48 PM
Pant Birta vera sætust. Sambönd við þá gömlu skipta miklu máli þegar þú elst upp. Sérstaklega við lang-afa og -ömmu þar sem Kibba er svo ung. Þetta er æði! og þú ert stollt móðir. Gerist ekki betra.
8:15 AM
Post a Comment
<< Home